|
06.10.2006 18:50:22 / Huginn
tad fer ad styttast i reunion hja okkur... jeii!!!
kvedja fra barcelona.
edda
»
25.04.2006 14:17:55 / Huginn
Viljum þakka fyrir árið og öllum sem hafa hjálpað okkur!þið eruð
æði!
Grill á morgun í hádeginu og mikil gleði að sjálfsögðu. Aldrei að
vita nema Júlíus komi með eitt lokablogg handa okkur
kys&knús!
Stjórnin
»
31.03.2006 14:12:23 / Huginn
önnur ferð á fimmtudaginn....allir MA-ingar núverandi sem gamlir
að mæta!!
Verður gríðððarleg stemmning og gaman að hvetja strákana
áfram!
Ætlum að vera enn fleiri en síðast og þarsíðast. Náum vonandi
vel yfir 300..er það ekki ?
ÁFRAM MA!!
»
30.03.2006 09:57:52 / Huginn
Gettu betur ferð kl.11 á eftir! JEIIIIII!!!
Erum að fara að hafa rosa gaman og vonandi að taka þessa MH-inga í
nefið 
Vonandi mæta MR-ingar og styðja okkur!
-edda
»
26.03.2006 10:29:40 / Huginn
Jeii..ég vil þakka stjórninni og öðrum skemmtilegum kompudýrum
fyrir þetta magnaða kvöld okkar í gær! Singstar, dansidans, nammiís
og sjallinn...verður ekki betra Þórný leit út eins og Sandy í
Grease, Kristín var glimmerdrusla..grr, Sigga með sprengjurnar tvær
á sínum stað og hlæjandi allt kvöldið og Edda eins og kínversk
vændiskona! Frábær blanda! Strákarnir alltaf jafn myndarlegir
og prúðir..nema kannski júlíus sem á að skammast sín.
Annars..hress gettu betur ferð á fimmtudaginn og vonandi önnur í
næstu viku..jeii! Áfram litlu hönkar...!
Trixítrix....
»
05.03.2006 22:08:43 / Huginn
jeminn eini..alltof mikið um að vera næstu
daga....karlakvöld,söngkeppni,kvennakvöld og svo styttist í
Ratatosk..og erum ennþá í sigurvímu eftir gettubetur! Algjörar
hetjur þessir strákar okkar!
Svo ætlum við auðvitað að koma með eitthvað guðdómlegt atriði á
söngkeppni,sé það ekki alveg fyrir mér þar sem hún er á
fimmtudaginn..en júju stjórnarmeðlimir eiga nú ekki að sofa.
Annars fer að styttast í að við látum af störfum...er enginn að
hugsa um að taka við?
Mao formaður
nokkrar myndir úr jólafríi
Svolítið myndarleg...grrr...
Skrímslið
páfagaukurinn hans
Kristjáns...stuðbolti
»
01.03.2006 08:08:57 / Huginn
Jejj jejj það er öskudagur...............................
»
24.02.2006 15:12:29 / Huginn
Samræmd stúdentspróf lögð af í þeirri mynd sem þau eru núna!
Þetta eru frábærar fréttir og trúi ég að MA mótmælin hafi haft
mikil áhrif!
Tilhamingju!!! Nú er bara styttingin eftir...jeii
-edda trix - er þetta ekki jafn töff og hax?
»
15.02.2006 19:45:45 / Huginn
Það er nóg að gera hjá Stjórninni þessa dagana.
Bachelorette MA var sýnd í Kvosinni á mánudaginn. Við
pöntuðum 100 (!) Greifapizzur og ófáa lítra af gosi sem runnu
ljúflega ofan i nemendur. Það var metaðsókn, líklega í kringum 500
manns og við erum afar ánægð með þessa frábæru mætingu!
Bachelorette þátturinn, sem snillingurinn Arnar var búinn að græja
og klippa saman, virtist falla vel í mannskapinn. Þáttakendur fóru
líka á kostum! Takk kærlega fyrir að taka þátt í þessu Theodóra,
Sveinn Elías, Kristján, Jón Gísli og Ólafur Már. Júlíus var svo
sérlega slepjulegur og væminn sem stjórnandi þáttarins.
Rómantíkin hélt áfram í gær. Páll Óskar kom og spilaði
fyrir okkur í væminni Kvosinni. Dansinn dunaði og make-out-cornerið
okkar var vinsælt hjá mörgum. Jafnvel bólaði á misjafnlega
siðsamlegum dansböttlum og dekurdönsum hjá ónefndum aðilum. Fjör og
stanslaust stuð.
Á döfinni er skemmtinefndarkvöldvaka og mótmælabras! Við ætlum að
sýna menntamálaráðherra hvers nemendur MA eru megnugir, eins og
þegar samræmdu prófin voru. Betri upplýsingar koma síðar, en þetta
verður gaman.
Kelga Hax kveður!
»
10.02.2006 06:27:54 / Huginn
Í gær var fyrsti gleðidagurinn á þessari önn og var hann afar
skemmtilegur!
Gáfum karamellur,sleikjóa,kex og svala. Auðvitað settum við
hressandi plaköt upp á veggina!!
Á mánudaginn er síðan bachelorette og á þriðjudaginn ball svo að
það er nóg að gera! Um að gera að finna sér einhvern dúdda eða
dúddínu til ð koma með sér á svona rómantískt ball Páll Óskar
kemur auðvitað aftur þar sem við erum öll einstaklega miklir
aðdáðendur hans!
Það er frítt á ballið fyrir pör Hugins og smáaur fyrir þá sem
mæta stakir..og fyrir aðra en Hugins félaga er 1000kr.
Jörgen
»
08.02.2006 17:49:56 / Huginn
Héldum stuð fund. Fengum Sigurð Helga og Villa í heimsókn til okkar
og ræddum svo skemmti dagskrá á þessari önn. Gettu betur, Manþing,
Ratatoskur, Kvöldvökur og fleira hútt. Bjartmar skipulagði strippið
sem hann lofaði í kostningar ræðu sinni og reynt var að koma út
þeim stjórnarmeðlimum sem eru á lausu.
Við blésum upp blöðrur og gerðum upplífgandi
plaköt sem við hengdum upp um allan skóla....... sem þýðir að á
morgun er....... GLEÐIDAGUR!!!
hoj hoj hoj
Sigga flippaða
ps. Krakkar þið verðið að vera duglegri að syngja fyrir söngsali.
Það er búið að hóta okkur að blása söngsali bara af. Þetta gengur
ei. Herðum okkur öll og syngjum hátt og skýrt á langa-gangi á
morgun!!
»
03.02.2006 15:33:44 / Huginn
Ég var að setja inn myndir af póstkassakvöldinu. Þar var
greinilega glatt á hjalla.
Kveðja Sigga Ásta
»
24.01.2006 02:29:34 / Huginn
Jeii við unnum MK...tilhamingju strákar! Ég, Tóta,Ottó og vinur
vorum gríðarlegt stuðningslið og átti ég erfitt með að öskra þar
sem ég lá í hláturskasti útaf Ottó.
Unnar er þegar farinn að undirbúa sig fyrir sjónvarpið..nú er
bara okkar að gera eitthvað rosa töff myndband, Bjartmar
skemmtilegi á nú örugglega nokkrar hugmyndir í vasanum
Tilhamingju til þeirra sem eru búnir í prófum..ef ekki..gangi
ykkur vel á morgun Á morgun er gleðifundur og mótmæli verða rædd,
bachelorex skipulagt,Man-þingið..obbbobb,söngkeppni
framahaldsskólanna og annað skemmtilegt
Hef pínu áhyggjur af Siggu minni í stórborginni..búin að lesa
einum of margar ástarsögur..verður örugglega aðeins of ástleitin
við Ottó þegar hún kemur aftur!
Svo förum við að vinna í þvi að endurnýja hróp og klöpp..ef
einhver býður sig fram eða er með hugmynd endilega að láta okkur
vita.
Kærlig hilsen
Edda
»
20.01.2006 11:40:02 / Huginn
Selfölgelige burstuðu okkar menn ML enda voru þeir eitthvað
uppteknir af honum Svavari sem var víst eini stuðningsmaðurinn
þeirra. Ásgeir, Magni og Tryggvi þið haldið bara svona áfram og
vinnið þetta allt saman. Ykkur er velkomið að spila Trivial inní
kompu hvenær sem þið viljið.
Kveðja Sigga og Grétar
»
04.01.2006 20:20:47 / Huginn
Gettu betur liðið okkar mun keppa þann 19.janúar á móti
Menntaskólanum á Laugarvatni!
Þetta verður hörkuspennandi og við höfum auðvitað óbilandi trú á
okkar mönnum!
Stjórn Hugins
»
Síður: 1 2
|